Lýsing

14.–16. ágúst

Brottför kl. 12  frá FFA, Strandgötu 23. Farið er með rútu í Herðubreiðarlindir og þaðan fær hópurinn skutl að uppgöngunni á Herðubreið þar sem gangan hefst, eins verður á bakaleiðinni.

Fararstjórn: Fjóla K. Helgadóttir, Hjalti Jóhannesson og Sigurveig Árnadóttir jarðfræðingur


Ódáðahraun er mikið gósenland fyrir þá sem áhuga hafa á jarðfræði, því býður FFA upp á jarðfræðiferð þar sem Kollóttadyngja og svæðið þar í kring verður skoðað. Í sunnanverðu Ódáðahrauni við Bræðrafell í Kollóttudyngju á FFA nýlegan og vel búinn 16 manna gönguskála, þar sem gist verður í tvær nætur.

Í Ódáðahrauni er vatn af skornum skammti. Vatni er safnað af þaki skálans en þó er nauðsynlegt að taka a.m.k. tvo lítra af vatni á mann meðferðis til öryggis. Svæðið sem farið er um ber merki mikilla eldsumbrota. Það státar af sérkennilegum og fallegum hraunmyndunum, auðn, litadýrð og ekki síst mikilli kyrrð og mun jarðfræðingur sem er með í för fræða okkur um það sem fyrir augu ber.

Dagskrá ferðarinnar:

1.d., föstudagur: Lagt af stað frá Akureyri kl. 13.00.  Ekið sem leið liggur í Herðubreiðarlindir þar sem stoppað verður í stutta stund. Eftir það ekið áfram sem leið liggur vestur fyrir Herðubreið eftur torfærum jeppaslóða og gengið þaðan um 7.5 km í vestur að Bræðrafelli.  Gengið verðum yfir Flötudyngju, sem ber nafn með rentu. Þar er að sjá margar skemmtilegar jarðmyndanir og risastóra gíga. Skálinn er í 720 m h.y.s. og lítil sem engin hækkun.

2.d., laugardagur: Gengið á Kollóttudyngju (1.177 m) en þaðan er afar víðsýnt og Bræðrafell og ýmsar aðrar jarðmyndanir skoðaðar á bakaleiðinni. Hækkun um 500 m.

3.d., sunnudagur: Gengin sama leið til baka í átt að uppgöngunni á Herðubreið þar sem bílarnir bíða og aka ferðalöngum til Akureyrar. Áætlaður komutími til Akureyrar er kl. 16-17. 

Hámarksfjöldi 12 manns.


Verð: 59.500 / 64.500 kr. Innifalið: Rúta og akstur frá Lindum að uppgöngunni á Herðubreið, gisting í tvær nætur, fararstjórn og fræðsla.

Greiða þarf staðfestingargjald vegna skráningar í þessa ferð kr. 10.000 kr. í síðasta lagi 14 dögum eftir að krafa er stofnuð í netbanka. Þessa ferð þarf síðan að greiða að fullu fyrirfram, þremur dögum fyrir brottför. Krafa verður stofnuð í netbanka.



Skráning í ferðina
Skráning í ferðina

Búnaður

  • Gönguferðir: 2 skór

    Miðlungserfiðar ferðir: Miðlungslangar dagleiðir, yfirleitt 5 - 7 klst. oftast utan slóða og/eða í hæðóttu landi. Bakpoki þarf ekki að vera þungur. Engar eða auðveldar ár. Þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun.


    Nauðsynlegur búnaður er meðal annars:

    Góðir gönguskór sem ætlaðir eru til dagsferða með góðum stuðningi

    Göngustafir ef vill

    Bakpoki (dagpoki) gott að hann sé með bakpokahlíf

    Sólgleraugu, sólarvörn og varasalvi

    Sjúkragögn, hælsærisplástur, teygjubindi og verkjalyf og annað smálegt

    Viðeigandi fatnaður, hlífðarföt, regnföt (vaðskór ef gefið er upp að það þurfi að vaða)

    Vatn/drykkir og nesti til dagsins (gott að hafa orkuríkt nesti og göngunasl)

    Alltaf gott að hafa í bakpokanum: Flugnanet, legghlífar, auka sokkar, buff og brodda; svokallaðir Esjubroddar eiga að duga í svona ferð.